24.5.2009 | 23:26
Vorönn lokið
Nú er loksins komin síðari einkunnin í hús. Gekk bara þrælvel, sérstaklega með tilliti til hás hlutfalls falleinkunna í námskeiðinu.
Það er gott að geta lokað á þetta. Á meðan einkunnir hafa ekki skilað sér er maður sífellt með hugann við þær, en nú er komið sumar.
Fór í fjallgöngu með stráknum mínum í morgun. Gengum á Hróann. Nutum vel fallegs útsýnisins yfir Breiðafjörðinn, inn eftir öllum firði og alla leið út á Öndverðanes.
Það er æðislega gaman að ganga á fjöll, vonandi verður meira um slíkt framundan.
Gleðilegt sumar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.