28.7.2010 | 12:44
Ortler taka 1.
Nú var komiđ ađ ţví ađ fara á hćsta fjall í Suđur Týrol. Ortler.
Ég lagđi af stađ fyrir hádegi og keyrđi sem leiđ lá fyrst til Bozen (Bolzano) og ţađan til norđurs og vesturs í Vinschgau dal alla leiđ til Sulden ţar sem Angela Merkel eyđir sumarfríinu sínu í nćstu viku.
Frá Sulden gekk ég svo af stađ eftir gönguleiđ nr. 4 í gegnum furuskóg og síđan í urđ og grjóti.
Eftir 1 og 1/2 klukkustundar göngu vćri hćgt ađ koma viđ í Tabaretta Huette og kaupa sér veitingar eđa jafnvel gistingu, eins og í flestum ef ekki öllum svokölluđum fjallakofum. En ţeir eru oft fyrirtaks veitingarhús. Ég gekk hins vegar áfram, upp hlíđina og utan í klettana og vestur yfir klettakambinn.
Ţađan var ekki mjög langt upp í Payer Huette ţar sem ég átti pantađa gistingu og átti ađ hitta leiđsögumanninn sem átti ađ klifra međ mér og fara á jökulklćddann Ortler toppinn nćsta morgun.
Uppi viđ kofann í 3029 m hćđ var einnar gráđu hiti, og varla mikiđ hlýrra í herbergjunum. En ţar voru ţykkar sćngur og teppi og heit súpa í Payer Huette fjallakofanum yljađi manni fyrir svefninn.
Nćsta morgun kl. 6. blasti viđ manni bókstaflega ískaldur veruleikinn.
Ţađ hafđi snjóađ rćkilega um nóttina og rétt ofan viđ fjallakofann var ennţá blinda og of sleipt til ađ klifra í klettabeltinu neđan viđ jökulinn.
Ţví miđur ekki annađ ađ gera en ađ snúa aftur niđur til Sulden og reyna aftur síđar.....Dapurlegt, en eitt af ţví sem fylgir ţví ađ vera til fjalla.
Gengur vonandi betur nćst
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.