Kominn aftur heim

Þá er maður kominn aftur heim óbrotinn og að öllu leiti heill á húfi þrátt fyrir mikil tilþrif í skíðabrekkum ítölsku alpanna. Það var yndislegt að skíða í sólinni á milli trjánna með fjölskyldunni sem á þessa íþrótt sem sameiginlegt áhugamál.

Nú fer að líða að því að skólinn byrji aftur en mér sýnist nú að maður nái að fara í nokkra róðra áður en allt fer af stað. Ég vona að verstu stormar vetrarins séu nú að baki og tíðarfarið verði okkur öllum sæmilega hagstætt.

Ég óska öllum sem villast inn á þessa síðu gleðilegs og gæfuríks árs.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

Gleðilegt ár, takk fyrir það gamla og sjáumst hressir á því nýja. já og velkominn til landsins.

Fannar frá Rifi, 6.1.2008 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband