Sammála málfundarfélaginu Óðni

Málfundafélagið Óðinn sendi frá sér ályktun þar sem m.a. þetta stendur:

„Með frumvarpinu er lögð á ríkið ábyrgð á skuldum einkafyrirtækis, skuldum sem ríkið ber enga ábyrgð á og hefur aldrei gengist undir. Þeir “fyrirvarar„ sem þingmenn telja sig setja við ríkisábyrgðina skipta sáralitlu máli en með icesave-samkomulaginu er íslenska ríkinu meira að segja sérstaklega bannað að gæta hagsmuna sinna, svo sem með skuldajöfnuði gagnvart breska ríkinu. Gæti það orðið til þess að hundraða milljarða króna krafa vegna beitingu hryðjuverkalaga Breta yrði að engu.

Málfundafélagið Óðinn lýsir furðu sinni á því, ef núverandi þingmenn Sjálfstæðisflokksins reynast leggja meira upp úr því að ná „samstöðu“ með þingmönnum vinstriflokkanna í fjárlaganefnd, en að standa með augljósum íslenskum hagsmunum. Réttur Íslands í málinu er skýr, en þingmenn virðast hvorki vilja heyra hann né sjá.

Íslenska ríkið ber enga ábyrgð á icesave-reikningum Landsbankans. Með samþykkt frumvarps fjármálaráðherra ákveða alþingismenn upp á sitt eindæmi að breyta því. Óðinn mótmælir því mjög harðlega.“

ÞINGMENN SEGIÐ NEI!!!


mbl.is Icesave-umræðu að ljúka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband