21.5.2007 | 00:31
Reglur
Svona eru reglurnar og menn verða að lúta þeim. Í raun hýtur þetta að vera hluti lýðræðisins og ekkert við því að segja að menn nýti sér þennan rétt. Ég er ánægður með að þessari leið skuli vera beitt fremur en að sleppa því að kjósa þann flokk sem kjósandinn er í meginatriðum hlynntur þó hann ´hafi eitthvað við einstaka frambjóðendur að athuga.
Hins vegar verð ég að setja stórt spurningamerki við auglýsingu Jóhannesar í Baugi. Viljum við að menn taki slíkan þátt í kosningabaráttunni í krafti auðs síns??
Það er vissulega löglegt, en er það rétt??
![]() |
Árni og Björn færast niður um eitt sæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.5.2007 | 00:24
Styrking lýðræðisins?
Var að lesa grein Illuga Gunnarssonar í Fréttablaðinu. Verð að lýsa mig sammála sumu og minna sammála öðru. Hann talar um aðstöðumun milli stjórnarflokka og stjórnarandstöðu. Það kann að vera rétt en ég tel að það þurfi að fara varlega í að auka áhrif stjórnarandstöðu á þingi. Suma þingmenn vilja kjósendur hreinlega kjósa burt og það væri skrítið að greiða fé úr vasa þessara sömu kjósenda til að auka áhrif þeirra sem kjósendurnir vilja ekki að ráði. Aftur á móti hljóma þau rök nokkuð vel að með því að ráða aðstoðarmenn fyrir stjórnarandstöðuforingjana verði andstaðan málefnalegri og gæti þess betur að ríkisstjórnin vandi sig. Hljómar ágætlega en ég er hræddur um að sterkari stjórnarandstaða myndi ekki eyða miklu í að fínpússa stjórnarfrumvörpin. Sennilega færi aukinn kraftur frekar í að slá sig til riddara og ná til sín aukinni athygli.
Ég held að styrking umboðsmanns alþingis væri nær lagi til að gæta þess að stjórnin vandi sig við löggjöfina.
Hitt er svo annað mál að ég er hjartanlega sammála Illuga þegar hann ræðir um ný lög um fjármál flokkanna. Ég hef grun um að þau komi ekki til með að styrkja lýðræðið í sessi heldur auka frekar á undarlegheitin, auka þá tilhneygingu að öðrum öflum en bara flokkunum og flokksstarfi sé beitt í kosningabaráttunni og síðast en ekki síst gera nýjum kröftum erfiðara fyrir að ná fótfestu í baráttunni. Það hlýtur að vera hluti af eðlilegu lýðræði að ný framboð eigi einhverja möguleika en séu ekki kaffærð af "establishmentinu" í krafti skattfjár hins almenna borgara. Fyrir utan það að ég hef takmarkaðan áhuga á því að borga fyrir kosningabáráttu Vinstri Grænna.
Ég tel að þessi nýja löggjöf um fjármál flokkanna hafi ekki verið til bóta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2007 | 22:26
Plan b
![]() |
Jón Sigurðsson: Staðfestir trúnaðarbrest milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.5.2007 | 23:27
Surprise surprise
Kemur það yfirleitt einhverjum á óvart að Steingrímur skuli telja ríkisstjórn hægra megin við sig sjálfan of hægrisinnaða?????
Ég er farinn að hallast að því að Steingrímur hafi hvort sem er aldrei viljað fara í stjórn. Til þess eru yfirlýsingarnar búnar að vera of magnaðar, hann veit að þær eru óframkvæmanlegar án þess að setja allt á annan endann. Honum líður hinsvegar vel í stjórnarandstöðu enda mælskur mjög og með eindæmum orðheppinn. Það má hann eiga. Orðheppnir menn njóta sín síður ef þeir þurfa að taka ábyrgð á orðum sínum og standa við þau stóru (put your money where your mouth is).
Hefði Steingrímur ekki haft þessa skoðun......þá hefði farið um mig hrollur!
![]() |
Steingrímur: Stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar allt of hægrisinnuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2007 | 21:31
Þessir herramenn.....
Það er nú gott að geta alltaf kennt öðrum um.
1. Í fyrsta lagi veit ég ekki betur en að Framsóknarmenn hafi lýst því yfir að þeir væru ekki til í að fara í ríkisstjórn með slíka útkomu í kosningum.
2. Í öðru lagi veit ég ekki betur en að m.a. á fundi hér í Ólafsvík hafi Samfylkingarfólkið (Össur og frambjóðendur Samfó á NV.) drullað yfir Framsóknarflokkinn sjálft og lýst þeim með orðum sem ekki er tilhlýðilegt að birta hér.
3. Í þriðja lagi held ég að ISG hafi hreinlega aldrei viljað samstarf við Steingrím og VG. VG var eftir sem áður helsti keppinautur Samfó og það hefur nú verið gangur sögunnar að vinstri flokkarnir hafa yfirleitt stungið hvorn annan í bakið þegar á reynir.
Annars er þetta sennilega ágætt fyrst Framsókn tapaði svona illa. Kosningarnar sýndu að það voru fáir sem vildu þá í ríkisstjórn. (Þó að það séu margir í Félagi Ungra Framsóknarmanna eins og sést hér). Nú mega Sjálfstæðismennirnir bara ekki gefa of mikið eftir af sínum málum.
Hér er svo m.a. ástæðan fyrir því að ég treysti ekki VG. Hérna!
![]() |
Ingibjörg Sólrún: VG vildi ekki mynda stjórn með Framsóknarflokki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2007 | 22:21
Gúrka
Eru nú fjölmiðlarnir farnir að fá einhvers konar fráhverfseinkenni frá gósentíðinni sem hefur verið undanfarnar vikur. Það er búið að segja frá möguleikunum. Það er búið að segja frá því hver hefur stjórnarmyndunarumboðið og það er búið að segja frá því að ríkisstjórnin sé ekki fallin og að flokkarnir íhugi nú afstöðu til áframhaldandi samstarfs.
Nú er fréttin sem sagt þessi: Það er ekkert nýtt að frétta. Bara gúrka.
![]() |
Biðstaða í viðræðum stjórnarflokkanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2007 | 23:17
Sannar sögur
Vil vekja athygli á þessum helgarpistli hérna. ......Þeir hafa ófáir létt manni lundina og þessi klikkar ekki heldur. Hver segir svo að sannar sögur þurfi að vera leiðinlegar. Aðal gamanið er raunverulegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2007 | 23:42
Kærar þakkir
Ég vil þakka öllum sem hjálpuðu mér að halda úti kosningaskrifstofunni hér í Snæfellsbæ. Þið eruð frábær .
Nú eru spennandi dagar stjórnarmyndunar og aldrei að vita hvað verður. Ég veit bara að nú get ég einbeitt mér að því að vera í vinnunni minni, prófin búin, kosningarnar búnar...... ahh.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2007 | 15:00
Kosninganóttin
Mest spennandi kosninganótt síðan ég man eftir mér: alþingiskosningarnar 2007. Stendur fellur stendur fellur. Kl. 3 eru 60 atkv. sem skilja á milli feigs og ófeigs. Þessi kosninganótt verður lengi í minnum höfð. Hingað til var sú nótt sem mér var alltaf í minni frá '99 þegar Mörður Árnason var inni og úti alla nóttina, var endalaust í viðtali og varð drukknari og drukknari eftir því sem leið á, grét þegar hann var úti, hló þegar hann var inni og varð ennþá meira drukknari og drukknari. Kosninganóttin 99 = Mörður Árnason grátandi og hlægjandi mökkölvaður á Laugaveginum.
Fagmannlegasti kynnirinn: Konan sem tilkynnir atkvæðin í Reykjavík Norður
Brjálæðislegasta spurningin: Eru margir í ungliðahreifingu Framsóknarflokksins? Svar: Já!
Furðulegasta fullyrðingin: Jón Sigurðsson er dottinn út af þingi. (Hann er ekkert þingmaður)
Hlutlausasta fullyrðingin: 32 manna tveggja flokka stjórn er óstarfhæf, verulega löskuð, 32 manna þriggja flokka stjórn er fyrsti kosturinn...
Flottasti textinn: "Og þótt ég hafi engu breitt...... þá lifi ég feitt"
Skrítnustu pælingarnar: Að það sé mjög ólýðræðislegt að minnihlutinn skuli ekki fá að ráða á alþingi.
Óvæntasti sigurinn: Samfylkingin er að festa sig í sessi 3ju kosningarnar í röð. Hún missir 1 þingsæti. Það er rosalega góður sigur.
Óvæntustu fréttirnar: Degi B. Eggertssyni finnst að ríkisstjórnin eigi ekki að halda áfram.
Ótrúlegustu fréttirnar: Svandís Svavarsdóttir er ekki Svavarsdóttir heldur Sveinbjörnsdóttir, þótt hún sé þannig að ef hún væri með skegg og poka undir augunum eins og Derrick þá væri hún nákvæmlega (og ég meina NÁKVÆMLEGA) eins og Svavar Gestsson.
![]() |
Ríkisstjórnin hélt velli með minnsta mun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.5.2007 | 00:51
Ónot?
Er þetta að hreyta ónotum í kjósendur? Mín skoðun er sú að Geir hafi hér bent fólki á staðreyndir. Algerlega utanaðkomandi aðili myndi sennilega segja að Geir hafi þarna einfaldlega sagt sína skoðun. Það eru engin skot á kjósendur eða gagnrýni á þá heldur lýsir Geir því einfaldlega að hann sé óhress með þetta og ói við slíkri niðurstöðu.
Þessi staðreynd er sjálfsagt ónotaleg fyrir Steingrím sjálfan enda sýnir sagan það að slík úrslit eru ekki notaleg.
![]() |
Steingrímur: forsætisráðherra hreytir ónotum í kjósendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)