21.8.2007 | 23:08
Duglegir snillingar...
Var að horfa á þátt á þýskri sjónvarpsstöð um duglega ríkisstarfsmenn. Þeir störfuðu hjá stofnun þeirri sem sér um að innheimta afnotagjöld fyrir sjónvarps og útvarpstæki. Nefnd voru nokkur dæmi um dugnað þeirra í vinnunni. Eitt var að tveir þeirra töldu háskóla nokkurn hafa óhreint mjöl í pokahorninu, þar hafði aðeins verið borgað af einu tæki (svona eins og var skylda hér, eitt tæki á heimili) en þeir fundu mun fleiri og í sumum kennslustofum fleiri en eitt, t.d. í fjölmiðlafræðistofunum. Þeir sendu skólanum reikning upp á 450 þús evrur (margfaldið með 90). Annað dæmi var af manni sem fékk sér sitt fyrsta sjónvarp 36 ára gamall, þá búinn að vera giftur með fjölskyldu í 6 ár. Hann var svo heiðarlegur að tilkynna strax um sjónvarpskaupin en fékk þá um hæl rukkun og sekt fyrir 5 árin á undan. Stofnunin vill ekki trúa því að hann hafi verið án sjónvarps svona lengi. Honum var gert að greiða allt eða sanna að hann hafi ekki átt sjónvarp. Sönnunarbyrðin var á honum. Eitt dæmið í viðbót var um það að hundur fékk rukkun og sekt fyrir að tilkynna ekki um sjónvarpseign. Nafn hundsins og eftirnafn eigandans var á aukadyrabjöllu við húsdyrnar. Stofnunin taldi öruggt að þar sem einhver ætti dyrabjöllu þar hlyti einnig að vera sjónvarp....
. Nokkur dæmi voru enn talin upp og alltaf var sönnunarbyrðin á greiðendunum. Þeir eru duglegir ríkisstarfsmennirnir í Þýskalandi! Ég bíð eftir því að fiskistofumenn bretti upp ermarnar..
Við sem kvörtuðum yfir afnotagjöldum RÚV.... ef við hefðum nú bara vitað þetta
Svo er ítalskt sveitarfélag farið að greiða íbúum sínum verðlaun fyrir að grennast. Þeir sem eru duglegir og hegða sér vel geta átt von á 700 evru glaðningi frá borgarstjóranum...jeeee! Þetta er alger snilld. Maður grennist og fær að launum peninga af sínu eigin skattfé. Frábært maður fær sína eigin peninga í verðlaun... En hvað með þá grönnu?
Jú þetta eru forvarnir: Með því að hafa skattana háa, svo hægt sé að greiða út verðlaunin, greiða starfsfólki laun fyrir eftirlitið og eitt og annað gagnlegt, þá hafa þeir grönnu ekki eins mikil efni á að fitna. Þetta er þrauthugsað! Bravó Italia!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2007 | 23:41
Kominn aftur
Var að detta inn úr dyrunum heima. Vaknaði á Ítalíu fer að sofa í Ólafsvík. Saknaði dýnunnar minnar sárlega. Mikið framundan næstu daga. Tíminn hefur víst ekki staðið kyrr á meðan ég var í burtu og verkefnin hafa ekki leyst sig af sjálfu sér.
Farinn í koju.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.7.2007 | 02:43
ýmislegt
Sá Kastljósið í kvöld þar sem Katrín og Borgar ræddu meðal annars um ný lög um nektarstaði og einkadans. Ég held að það sem vantar í umræðuna sé að hvort sem þetta er bannað eða ekki þá mun það eiga sér stað eftir sem áður. Er þá ekki betra að hlutirnir séu á yfirborðinu heldur en í undirheimunum? Nokkuð hefur verið rætt um mansal og vændi tengt nektarstöðum. Verður ekki erfiðara að hafa yfirsýn og fylgjast með hvort um slíkt er að ræða ef starfsemi nektarstaðanna er komin í undirheimana? Ég ætla ekki að dæma um hvort starfsemin sem slík sé af hinu góða eða slæma. Eflaust má finna rök bæði með og á móti. Ég held hins vegar að slík starfsemi verði ennþá skaðlegri en hún er nú, flytjist hún í undirheimana.
Var annars líka að lesa Vefþjóðviljann. Að vanda bættist bros við daginn við lesturinn. Mæli með síðunni.
Er að fara í frí. Búinn með kvótann, báturinn kominn í slipp og ítölsku alparnir bíða. Merkilegt annars að maður klárar alltaf þorskkvótann snemma þrátt fyrir að enginn þorskur eigi að vera til.....
Kærar kveðjur þar til í endir ágúst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.7.2007 | 11:46
Innilegar samúðarkveðjur
Ég sendi aðstandendum innilegar samúðarkveðjur.
Íslenska þjóðin varð fátækari í dag. Einar var einn af þeim þingmönnum sem best hefur reynst okkur öllum auk þess að vera indælis karl í persónulegum samskiptum. Þetta er skelfilegt.
Hans verður mjög sárt saknað.
![]() |
Einar Oddur Kristjánsson látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.7.2007 | 00:11
Sólstingur
Hafa menn ekkert þarfara að gera en að velta sér upp úr svona hlutum? Hvers konar gúrkutíð er í fjölmiðlum þegar mönnum dettur í hug að gera slíkar fyrirsagnir... eða var það einhver sem var rekinn frá Séð og heyrt?
Slakið bara á í sólinni. Engar fréttir eru betri en heimskulegar fréttir.
![]() |
Bara matréttir frá EES-ríkjum á boðstólum? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2007 | 00:30
Það er árangurinn sem skiptir máli, ekki upphæðirnar
Þetta er ágætis skref en betur má ef duga skal.
Það þarf að stuðla að meiri notkun smokksins og forvarna yfirleitt. Eitt mikilvægasta málið er að liðka fyrir hagvexti og betri efnahag. Það verður helst gert með viðskiptafrelsi, skilgreindum eignarréttindum og bættum mannréttindum.
Fjárframlögin eru góð en menn verða að gæta þess að þau nýtist vel. Það er árangurinn sem skiptir máli, ekki upphæðirnar.
![]() |
Bush heitir 30 milljörðum Bandaríkjadala í baráttuna gegn alnæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2007 | 00:08
Aumingjaskapur á Akureyri
Sá í 10 fréttunum að það yrði engin dagskrá á Sjómannadaginn á Akureyri. Útgerðarmenn hefðu ekki viljað taka þátt í útgjöldunum og því væri ekki hægt að halda upp á daginn með tilheyrandi dagskrá. Hvað á þetta að þýða? Forsvarsmaður eins útgerðarfyrirtækisins heldur því fram að áhugi fólks fyrir Sjómannadeginum hafi dvínað.
Gefum okkur að það sé rétt.... þá er það ekki síst svona nirfilshætti að kenna! Hvers konar aumingjaskapur er þetta og vanvirðing við þá starfsstétt sem hefur lagt grunninn að farsæld þjóðarinnar? Með þessu er sjómannastéttinni allri sýnd mikil vanvirðing og þessir menn ættu að skammast sín. Svei!
Eiga þessir menn ekki að vera að vinna í að byggja upp ímynd greinarinnar? Það er nógu mikið að greininni vegið, af aðilum sem koma hvergi nærri, þó að útgerðarmennirnir sjálfir fari ekki að hjálpa til við að grafa undan henni.
Aumingjaskapur! Svei og svei!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.5.2007 | 00:03
Hjólaðu bara...
Það fer ósegjanlega í taugarnar á mér þegar menn sem hafa ekkert vit á aðstæðum, enga innsýn inn í menningu veiðiþjóða og engan vilja til að skilja að það eru ekki alls staðar sömu vandamálin.
Ekki fárast ég yfir því að hundar skuli vera borðaðir í Kóreu og Kína, þótt mér finnist það vissulega skrítið. Mér þykir vænt um hunda og finnst þeir skynsamar skepnur.
Stundum er hægt að koma fólki í skilning um að skoða verði aðstæður í hverju tilfelli fyrir sig þegar maður vísar til venjulegra skotveiða. Veiðimenn átta sig á því að jafnvægi raskast ef einum hlekk keðjunnar er sleppt úr veiðum.
Af hverju eru svo hvalirnir eitthvað merkilegri en önnur spendýr sem við leggjum okkur til munns? Það vita það flestir sem hafa komið inn í fjós að þegar ein kýr baular baular önnur á móti, rolla jarmar á sérstakan hátt þegar hún "talar" við nýborið lamb sitt.... Vitum við að hvalirnir séu eitthvað merkilegri??
Hjólaðu bara vinur og njóttu umhverfisins.
![]() |
Á hjóli með líkkistu í eftirdragi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.5.2007 | 23:46
Hvítasunnudagur fagur
Þetta var verulega fallegur dagur í dag.
Fór í fermingu elsta systursonar míns í Reykjavík sem er alveg frábær strákur. Þetta var falleg athöfn og skemmtileg veisla þar sem borðin svignuðu undan veisluföngunum. Það ætlar að ganga illa að koma sér í form eftir veturinn ef maður raðar í sig kökum og góðgæti á hverri helgi.
Ég er stoltur af frænda mínum. Mér hefur alltaf verið hlýtt til hans og ég held að hann eigi góða framtíð fyrir sér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2007 | 01:32
Gott bú
Kristján Möller tekur svo sannarlega við góðu búi. Sturla er búinn að standa sig mjög vel í sínu ráðherraembætti sem er örugglega ekki léttasta ráðuneytið. Margt af því sem Sturla hefur gert á sínum ferli hefur lítið verið í sviðsljósinu og því má kannski segja að starf hans hafi verið vanmetið af almenningi. Það er nefninlega ekki bara að klippa á borða hér og þar, bora göng og byggja brýr. Skipulagningin og sérstaklega einföldun á kerfinu held ég að megi segja að Sturla eigi heiður skilinn fyrir. Það bara sést ekki í sjónvarpi...
Af störfum hans að dæma í sínu ráðuneyti held ég að við gætum ekki fengið betri forseta Alþingis, þar sem skipulagning og skilvirkni eru grundvallaratriði. Ég óska þingheimi til hamingju með traustan mann í það embætti.
![]() |
Kristján: Samgönguráðuneytið skriðþungt skip |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)