Ég elska ljóskubrandara

Ljóskan hringir í kærastann og segir: "Viltu vera svo vænn að koma hjálpa mér að

pússla rosalega erfitt pússluspil, ég veit ekki alveg hvernig ég á að byrja ?"

Kærastinn spyr : Af hverju á myndin að vera?
Ljóskan: Miðað við myndina utan á kassanum þá á þetta að vera hani.

Kærastinn ákveður að fara að hjálpa henni með pússlið.

Þegar hann kemur hleypir hún honum inn og leiðir hann að borðinu þar sem hún hef
ur dreift úr öllum bitunum í pússlinu.

Hann skoðar bitana í smástund, lítur á kassann, snýr sér þá að henni og segir :
"Í fyrsta lagi, alveg sama hvað við gerum, eigum við ekki eftir að geta sett bit
ana þannig saman að þeir muni á nokkurn hátt líkjast hana."

Hann tekur í hönd hennar og segir: "Í öðru lagi, vertu róleg, fáum okkur góðan t
ebolla og svo skulum við..." segir hann andvarpandi.......










































"..setja allt kornflexið í kassann aftur." LoL

með titrandi tár..

Ég verð að viðurkenna að ég er mjög veikur fyrir þjóðsöngnum okkar og meira að segja viðkvæmur fyrir því að hann sé hafður í flimtingum. Ég er sjálfsagt eitthvað íhaldssamur í þessum efnum. Það er eitthvað svo fallegt við laglínuna, textann og lagið. Það er sennilega skrítið að ég skuli vera svona viðkvæmur fyrir þessu en t.d. kippi ég mér alls ekkert upp við Símaauglýsingu Jóns Gnarr, enda þótt ég telji mig kristinn.

Ég vil sem sagt alls ekki skipta um þjóðsöng, þótt ég hafi ekki raddsvið til að syngja þennan (við eigum nóg af góðu fólki til þess). Ég vil halda áfram að heyra hann í dagskrárlok á RÚV á Sunnudagskvöldum og ég vil ekki að það sé verið að fíflast með hann. Þetta er þjóðsöngurinn okkar. Hann er hluti af okkar sál og sögu. Hann er hluti af því að við erum Íslendingar. Við skiptum ekki um foreldra þótt þeir fari að grána. Við skiptum heldur ekki um þjóðsöng bara af því að það er auðveldara að syngja eitthvað annað poppaðra. Það er til hellingur af fallegum lögum og söngvum um Ísland og við skulum halda áfram að syngja þá söngva. En það er aðeins einn þjóðsöngur og einmitt af því hann er svona sérstakur er hann einstakur og við viljum einstakan þjóðsöng.

Við erum einstök þjóð og eigum einstakan þjóðsöng. 


mbl.is Mismunandi útgáfur þjóðsöngsins samræmdar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott í Kvennó

Mér sýnist þetta hafa verið flott busavígsla. Mátulegar manndómsvígslur, flottir búningar, viss taugatitringur í busunum en þó engar öfgar eða meiðsl. Svona á þetta að vera!

Það er ótrúlegt að sumir skuli vilja banna allt sem er skemmtilegt. Það er ekkert gaman að vera pakkað inn í bómull og loftbóluplast. Sumt er gaman og eftirminnilegt einfaldlega fyrir þær sakir að það daðrar við hið bannaða og stundum hið óþægilega. Af hverju finnst sumum gaman í flúðasiglingum? Er það af því að það er svo þægilegt og rómantískt? Nei, það er af því að það er að sumu leiti hættulegt og á mörkum þess sem við viljum lenda í. Busavígslur eru eftirminnilegar og skemmtilegar og svo lengi sem ógeðið gengur ekki út í öfgar er þetta hefð sem leggur sitt að mörkum til að gera framhaldsskólaárin skemmtileg.

Flott hjá Kvennó!


mbl.is Busaböðlar í miðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilliástæða Brusselfarans

Ég held að fylgismenn hugmyndarinnar um að taka upp evruna séu eingöngu að reyna að nota sér múgæsing í þessu sambandi til að ýta okkur inn í Evrópusambandið. Það er reynt að tala krónuna niður við hvert tækifæri sem gefst. Svo þegar það sjónarmið kemur fram að ekkert mál sé að taka upp evruna einhliða og án þess að ganga í Evrópusambandið, þá er sem minnst gert úr því, hummað og ha-að og sagt að það væri nú samt betra að ganga skrefið til fulls. Það er sem sagt ekki málið að taka upp evruna, heldur er það draumur viðskiptaráðherrans að komast til Brussel. Mín vegna má hann fara með þessar hugmyndir sínar mikið mikið lengra í burtu.

Hvað er eiginlega málið? Ef krónan er svona slæm hlýtur lausnin að vera sú að auka frelsi til að nota þann gjaldmiðil sem hverjum og einum hentar, krónur, dollara, evrur, skeljar. Þá verður á endanum besti gjaldmiðillinn ofaná. Við þurfum allavega ekki að ganga í Evrópusambandið til þess.


mbl.is Ekkert sem kallar á gjaldmiðilsbreytingu nú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

upp upp upp

Upp upp mitt bensinverð.

Þetta hækkar bara og hækkar. Hugsið ykkur ef Íslendingar væru sjálfum sér nægir með eldsneyti, hvort sem það væri úr olíuhreinsistöð í Arnarfirði eða með eigin vetnisframleiðslu. Þetta er stöðugt peningaflæði út úr landinu.

Þetta eru mjög óvelkomnar hækkanir, einmitt þegar maður er að byrja á keyrslunum í skólann.

Meiri kostnaður, meira fjör.Frown


mbl.is Verð á bensíni hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hetjur!

,,Á ráðstefnunni náðist óformlegt samkomulag um, að iðnríki skuli stefna að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 25-40% fyrir árið 2020."

Þetta eru snillingar. Af hverju gera þeir sig ekki að enn meiri góðmennum og umhverfissinnum og ná óformlegu samkomulagi um 50 - 60 % minnkun á losun? Þeir geta jú rabbað saman um hvað sem er, tekið í hendurnar á hvor öðrum oftar og innilegar fyrir framan myndavélar fjölmiðlanna, og náð óformlegu samkomulagi um hvað sem er. Af því að:...

Í fyrsta lagi er þetta óformlegt samkomulag. Í öðru lagi er þetta alls ekki bindandi og því algerlega marklaust. Í þriðja lagi er talað um að stefna skuli að... humm og ha og já já.

Í fjórða lagi (og þetta skiptir kannski mestu) verða þessir pólitíkusar horfnir úr sviðsljósinu árið 2020 og sumir komnir undir græna torfu. Það breytir þá engu hvað þeir handsala óformlega í dag, heimurinn verður öðruvísi á morgun.

Hvað ætli ráðstefnan hafi kostað mikla peninga (sem hefði verið hægt að nota t.d. til að grafa brunna í Afríku eða byggja skóla)?  Hvað ætli ráðstefnugestir hafi losað mikið af gróðurhúsalofttegundum í einkaþotum á leiðinni þangað? Hvað ætli hafi tapast mikill tími í ráðstefnuna sem hefði mátt nota til einhvers gagnlegs?

Það trúa því hins vegar flestir að þessir menn séu bjargvættir. Þess vegna er það stjórnmálamönnunum í hag að sem flestir trúi því að heimurinn sé á ystu nöf og bjargvættanna sé því þörf. Þeir eru hetjurnar okkar!


mbl.is Samkomulag um losunarmarkmið á umhverfisráðstefnu SÞ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjúkar ógnir

Auðvitað vantar okkur mýkri varnir. Ef að okkur steðjaði ógn væri það félagslega óréttlátt að taka hart á móti henni. Það þarf miklu frekar að breiða út arminn og endurhæfa ógnarmennina svo að þeir verði mjúkir ógnarmenn sem gráta og sjá eftir því að hafa verið hræðilegir.

Auk þess þarf að koma upp sérstöku þjóðaratkvæðagreiðslukerfi þar sem við getum sýnt vilja þjóðarinnar til þess hvort við eigum að verja okkur eða ekki. Þetta er hárrétt hjá Ingibjörgu, varnir okkar eru ólýðræðislegar hvað varðar þjóðaröryggi. Það þarf að ræða hlutina mikið meira, og að sjálfsögðu á mjúku nótunum.

Ég er mjúkur maður, kannski fæ ég pláss hjá IngibjörguCrying.


mbl.is Unnið að gerð ógnarmats fyrir Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blaðagreinar að handan

Það væri ansi skondið ef það kæmi upp úr kafinu að Kastró væri fluttur yfir móðuna miklu fyrir löngu. Þetta væru þá greinar að handan. Reyndar gæti það alveg verið í kommúnistaríki að til væru greinar að handan. Fólki er bara bannað að trúa öðru en að þetta sé allt saman satt og rétt.... og þá verður það satt og rétt.

Það væri annars skemmtilegt að ferðast til Kúbu einhvern tíma fljótlega. Kúba er orðin eins konar heimspólitískt Árbæjarsafn. Það er hætt við að margt fróðlegt glatist þegar og ef um stjórnarfarsbreytingu verður að ræða.


mbl.is Kastró segist veðja á Clinton og Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bannað bannað bannað!

Eru ekki alveg allt í lagi? Hversu langt er hægt að ganga í vitleysunni? Hvað ef maðurinn hefði nú ofnæmi fyrir svitalyktinni af konunni? Yrði hún þá að flytja? Mætti hún þá ekki koma nálægt sínum lóðamörkum?

Ég minni á að það eru margir sem dásama kerfið í Svíþjóð, velferðarkerfið og forsjárhyggjuna. Forsjárhyggjan er svo gjörn á að vefja upp á sig og mér finnst nú nóg um margt hér heima. En úti í Evrópunni fá þeir aldrei nóg og Svíarnir eru greinilega í fararbroddi.


mbl.is Bannað að reykja í eigin garði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á leið í kappakstur?

Var hann ekki bara á leið í kappaksturinn (sjá hér)og ætlaði að vera rétt græjaður???
mbl.is Ölvaður og ökuréttindalaus á hjólagröfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband